7.3.2007 | 16:51
Metro
Átti hræðilega lífsreynslu í metro um daginn sem mig langar ekki að segja hér. Var næstum því farin að gráta. Ég uppgötvaði þann sama dag hversu mikil stórborg Paris getur verið.
Ég fór í bíó með Veru síðasta laugardag, sáum Direktören eftir Lars Von Trier. Mjög skemmtileg cómedía þar sem Friðrik Þór og Benedikt fóru á kostum í hlutverkum sínum sem Íslenskur buisness karl og túlkurinn hans. Held að við höfum hlegið manna mest í salnum.
Annars held ég að vorið sé loksins að koma í París. Sól og voða gott veður og fólk er byrjað að sitja úti á kaffihúsum og veitingahúsum og ég held að ég geti bara farið að pakka úlpunni minni.
Takk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.3.2007 | 22:48
Encore une fois
Nú hefst enn ein tilraun mín við að blogga og nú er pressan enn meiri því að nú er ég ein í fyrsta skipti. Nú er ég stödd í París þar sem ég er að læra frönsku við Sorbonne og er búin að vera búsett þar síðan í semtember á síðasta ári. Hér er lífið mjög gott, íbúðin mín er frábær og meðleigjandinn minn líka og hér er fullt af góðu og fallegu fólki. En dvöl mín hér fer að enda bráðum. Ég flyt heim 31. mars, fyrst til að fara í fermingu litla bróðurs míns og í kjölfarið á því fer ég með hele famelien til New York að heimsækja Óskar stóra bróður minn sem er að læra arkitektur þar.
Þessa dagana er ég að:
læra að prjóna upp á nýtt
reyna að ákveða hvað ég á að gera við lífið mitt. Mjög erfitt allt of margar og ólíkar hugmyndir í gangi
kenna í íslenskuskólanum í París
reyna að læra að reikna út hversu mikið pasta þarf að sjóða fyrir 2 manneskjur. Geri alltaf óvart fyrir svona 5
horfa á allar bíómyndir sem maður á að vera búinn að sjá
njóta lífsins
Peace!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.3.2007 | 23:19
Fyrsta bloggfærsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

